Veitingahús Landnámsseturs

 

Veitingahús Landnámsseturs

 

Hvíti salur

Í veitingahúsi Landnámsseturs eru tveir salir; Hvíti salur og Arinstofa og rúma þeir samtals allt að 100 manns.

 

Yfir vetrartímann er veitingahúsið opið frá klukkan 11 til 17 alla daga og lengur ef viðburðir eru í húsinu. Einnig er opnað sérstaklega á kvöldin fyrir hópa ef þess er óskað.

 

Í hádeginu eru á boðstólum tvær tegundir af súpum, nýbakað brauð og salat á góðu verði. Tilvalið fyrir vinnandi fólk eða þá sem eiga leið um Borgarnes.

 

 

 

 

 

 

Ef pantað er fyrirfram getum við framreitt ýmsa spennandi rétti.

 

Lögð er áhersla á gott, ítalskt kaffi og úrval af girnilegu meðlæti.

 

Fjölbreyttur matseðill og sérstök leikhústilboð - smellið á stikuna vinstra megin á síðunni.